Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 16. maí 2020 09:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grótta ræður Pétur sem íþróttasálfræðiráðgjafa
Pétur Már í leik með Gróttu fyrir nokkrum árum.
Pétur Már í leik með Gróttu fyrir nokkrum árum.
Mynd: Eyjólfur Garðarsson
Grótta hefur ráðið Pétur Má Sigurðsson sem íþróttasálfræðiráðgjafa hjá félaginu.

Pétur hefur verið að þjálfa 3. og 4. flokk karla hjá Gróttu, en einnig mun hann kom inn sem þjálfari 5. flokks karla og sem íþróttasálfræðiráðgjafi hjá félaginu. Í því starfi mun hann vinna náið með bæði með leikmönnum og þjálfurum knattspyrnudeildar.

„Um er að ræða nýtt hlutverk og verkefni innan félagsins þar sem lögð verður áhersla á að vinna með andlega þátt knattspyrnuiðkunar, til viðbótar við líkamlega þjálfun iðkenda," segir í tilkynningu Gróttu.

Pétur mun nýta næstu mánuði til að undirbúa og skipuleggja starf íþróttasálfræðiráðgjafa, ásamt því að hefja vinnu með þjálfurum og iðkendum knattspyrnudeildar. Áætlanir gera ráð fyrir að frá og með upphafi árs 2021 verði hlutverk íþróttasálfræðiráðgjafa skipulagt og orðið samþætt í starfsemi yngri flokka félagsins.

„Ég er gríðarlega ánægður með innkomu Péturs Más í hlutverk íþróttasálfræðiráðgjafa, nokkuð sem við höfum unnið við að koma á fót undanfarna mánuði. Sífellt meiri áhersla er lögð á andlega þáttinn í knattspyrnuþjálfun, bæði í barna- og unglingastarfi og afreksþjálfun. Ráðning Péturs er brautryðjendastarf af hálfu Gróttu og sýnir metnað félagsins í verki," segir Chris Brazell, yfirþjálfari hjá Gróttu.


Athugasemdir
banner
banner
banner