Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 16. maí 2020 18:02
Ívan Guðjón Baldursson
Hvíta-Rússland: BATE vann toppslaginn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
BATE 3 - 0 Slutsk
1-0 Nemanja Milic ('4)
2-0 Igor Stasevich ('24)
3-0 Pavel Nekhajchik ('70)

Willum Þór Willumsson lék allan leikinn er BATE Borisov sigraði Slutsk í toppbaráttu hvítrússneska boltans í dag.

Liðin voru jöfn á stigum í þriðja sæti fyrir leikinn en BATE náði toppsætinu með sigrinum. Willum og félagar eru þar með eins stigs forystu á næstu tvö lið.

Nemanja Milic kom heimamönnum yfir snemma leiks og tvöfaldaði Igor Stasevich forystuna með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu.

Pavel Nekhajchik gerði út um viðureignina með góðu skoti í síðari hálfleik.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner