Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 16. maí 2020 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Meistaralega gert" hjá Ramos að meiða Salah
Mynd: Getty Images
Giorgio Chiellini, varnarmaður Juventus, er að gefa út ævisögu þar sem mikið kemur fram.

Chiellini talar um Sergio Ramos, fyrirliða Real Madrid, í bókinni, en hann gefur það í skyn að Ramos hafi vitað nákvæmlega hvað hann var að gera þegar hann meiddi Mohamed Salah í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2018.

Salah fór meiddur snemma leik í úrslitaleiknum eftir viðskipti sín við Ramos. Stuðningsmenn Liverpool voru í kjölfarið brjálaðir út í Ramos sem er umdeildur leikmaður.

Chiellini lýsti Ramos sem besta varnarmanni í heimi og sagði hann: „Það var meistaralega gert hjá honum. Sergio hefur alltaf talað um að þetta hafi verið óviljaverk. En hann vissi það alveg að með því að falla á þennan hátt, án þess að losa takið sem hann hafði, þá væri hann að fara að brjóta handlegginn á andstæðingnum í níu af tíu skiptum."

Þess má geta að Real Madrid vann leikinn gegn Liverpool 3-1, en Liverpool vann Meistaradeildina svo árið síðar - á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner