Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 16. maí 2020 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu hvernig Hinteregger bjargaði á marklínu
Mynd: Getty Images
Eintracht Frankfurt fékk Borussia Mönchengladbach í heimsókn í síðasta leik dagsins í efstu deild þýska boltans, sem fór aftur af stað í dag eftir rúmlega tveggja mánaða fjarveru vegna kórónuveirunnar.

Gladbach var 0-3 yfir þegar heimamenn reyndu að koma til baka á lokakafla leiksins. Þeir náðu að minnka muninn niður í tvö mörk en skömmu síðar komust gestirnr ansi nálægt því að bæta fjórða marki sínu við, ef ekki fyrir magnaða línubjörgun Martin Hinteregger.

Jonas Hofmann var kominn einn í gegn, framhjá markverðinum og með opið mark fyrir framan sig að undanskildum Hinteregger, sem tókst að verja skotið glæsilega og halda von sinna manna um endurkomu á lífi.

Frankfurt tókst ekki að koma til baka og urðu lokatölur 1-3, fjórða tap liðsins í röð í deildinni.

Viaplay sýnir þýska boltann á Íslandi.

Amazing block by Hinteregger vs M'Gladbach from r/soccer


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner