Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 16. maí 2021 15:35
Victor Pálsson
Pogba kallar Kante svindlara
Mynd: Getty Images
N'Golo Kante, leikmaður Chelsea, á það til að svindla mikið að sögn landa hans og félaga, Paul Pogba.

Kante er afar vinsæll í knattspyrnuheiminum en fáir leikmenn eru með eins mikla vinnusemi og þessi 30 ára gamli franski landsliðsmaður.

Kante er þó ekki fullkominn að sögn Pogba sem segir hann brögðóttan bæði á velli og fyrir utan.

„Hann svindlar mikið. Mjög mikið og líka í spilum. Ég er að segja ykkur sannleikann," sagði Pogba við BeIN Sports.

„Hann segist ekki svindla en hann gerir það. Hann er gáfaður strákur, N'golo. Það er samt í lagi, þú verður að elska hann."

„Hann er elskaðasti knattspyrnumaður allra tíma. Það er ekki hægt að hata hann, það er ekki möguleiki."

Athugasemdir
banner
banner
banner