Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var viðstaddur því þegar Ísland og Argentína gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik Íslands á HM í Rússlandi.
Hann segist hafa misst röddina í stúkunni.
„Strákarnir voru alveg magnaðir en ég að vísu missti röddina en það var svo algjörlega þess virði," sagði Dagur B.
„Ég er stoltur af strákunum og sérstaklega Hannesi. Mér finnst þetta vera hans leikur. Að sjá Messi fyrir framan sig á vítapunktinum þá hlýtur það að vera rosalegt."
Athugasemdir