Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. júní 2018 16:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Forsætisráðherra sendir kveðju - „Gætum ekki verið stoltari"
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands, fylgdist auðvitað með landsleiknum við Argentínu áðan. Ísland var að spila sinn fyrsta leik á Heimsmeistaramóti og náði jafntefli við lið sem er með einn besta fótboltamann sögunnar í sínum röðum.

Katrín sendi strákunum kveðju eftir þessa mögnuðu frammistöðu.

„TIL HAMINGJU STRÁKAR OG TIL HAMINGJU VIÐ ÖLL! Þið eruð algjörar hetjur og við gætum ekki verið stoltari! Þvílík barátta!" skrifar Katrín ánægð á Twitter.

Tíst hennar má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner