Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. júní 2018 15:12
Magnús Már Einarsson
Gylfi hljóp mest í íslenska liðinu
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið náði glæsilegu 1-1 jafntefli gegn Argentínu í fyrsta leik HM í dag.

Argentínumenn voru mun meira með boltann en íslenska liðið varðist vel.

Gylfi Þór Sigurðsson hljóp mest allra leikmanna í íslenska liðinu eða 11,04 kílómetra. Emil Hallfreðsson og Hörður Björgvin Magnusson komu næst.

Þetta má sjá á tölfræði sem Gummi Ben, lýsandi á láni hjá RÚV, birti á Twitter eftir leik.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner