Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 16. júní 2018 23:30
Gunnar Logi Gylfason
Ivanovic getur bætt landsleikjamet Serba
Mynd: Getty Images
Branislav Ivanovic, fyrrum leikmaður Chelsea til margra ára, bætir landsleikjamet Serbíu spili hann gegn Kosta Ríka á morgun.

Ivanovic, sem nú spilar með Zenit St. Pétursborg í Rússlandi, mun spila sinn 104. landsleik ef hann spilar á morgun.

Búist er fastlega við því að hann byrji inn á og taki þar með fram úr Dejan Stankovic, fyrrum leikmanni Inter Milan, sem spilaði 103 landsleiki á sínum ferli og er því jafn Ivanovic eins og stendur.

Serbía leikur gegn Kosta Ríka í hádeginu á morgun en leikurinn hefst kl 12:00. Liðin leika í E-riðli auk Brasilíu og Sviss.
Athugasemdir
banner
banner