Kritinn var í Frakklandi líka. Hér má sjá hann í treyju númer 5 til heiðurs Sverris Inga Ingason, varnarmanns Íslands.
Kristinn Jakobsson, einn besti dómari Íslandssögunnar ef ekki sá besti, er mættur til Rússlands að styðja íslenska landsliðið í fótbolta. Ísland mætir Argentínu í fyrsta leik sínum á HM á eftir.
„Að sjálfsögðu eigum við möguleika, það eru 11 á móti 11 og einn bolti," sagði Kristinn um leikinn við Argentínu. „Við verðum að passa upp á leikmann númer 10."
„Að sjálfsögðu eigum við möguleika, það eru 11 á móti 11 og einn bolti," sagði Kristinn um leikinn við Argentínu. „Við verðum að passa upp á leikmann númer 10."
Pólverjinn Szymon Marciniak dæmir leikinn í dag. Marciniak er 37 ára og varð FIFA dómari 2011. Þetta er annað stórmótið sem hann dæmir á, en hann var líka dómari á EM 2016. Þar dæmdi hann þrjá leiki, meðal annars eftirminnilegan leik Ísland og Austurríkis í París.
„Við eigum góðar minningar af honum, hann er frábær dómari. Hann er fyrrum leikmaður og er núna kominn í þennan elítuhóp. Hann er einn af 10 bestu dómurum Evrópu og ég á bara von á því að hann standi sig vel."
Viðtalið er í heild sinni má sjá hér að ofan, en þar ræðir Kristinn nánar um dómgæsluna á HM.
Athugasemdir