Leigubíl var ekið inn í hóp vegfarenda í Moskvu í dag, ekki langt frá Rauða torginu.
Að minnsta kosti átta vegfarendur slösuðust og þar á meðal voru nokkrir Mexíkóar sem voru mættir til Rússlands að styðja sína menn á Heimsmeistaramótinu.
Sjö þeirra slösuðu eru ekki mikið slösuð. Ein kona er í stöðugu ástandi á spítala.
Borgarstjóri Moskvu segir manninn hafa misst stjórn á bílnum en fréttir hafa einnig borist af því að hann hafi sofnað undir stýri.
Knattspyrnuáhugafólk í Moskvu ætti því ekki að hafa áhyggjur.
Athugasemdir