Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. júní 2018 16:40
Magnús Már Einarsson
Messi: Þurfum ekki að brjálast yfir þessu
Icelandair
Messi í baráttunni við leikmenn Íslands.
Messi í baráttunni við leikmenn Íslands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við þurfum ekki að brjálast yfir þessu," sagði Lionel Messi, fyrirliði Argentínu, eftir 1-1 jafnteflið gegn Íslandi í fyrsta leik HM í dag.

„Þetta var rétt að byrja og við vissum að þetta yrði ekki auðvelt. Þetta er synd því við verðskulduðum að vinna en við þurfum samt að bæta ýmsa hluti."

Messi fékk gullið tækifæri til að tryggja Argentínu sigurinn í síðari hálfleik en Hannes Þór Halldórsson varði þá vítaspyrnu hans.

„Við vorum betri. Við reyndum en þetta datt ekki. Það var sársaukafullt að klikka á vítaspyrnunni."

„Við áttum í erfiðleikum með að skapa færi. Við ætlum að vinna Króatíu í næsta leik," sagði Messi en Argentína mætir Króatíu á fimmtudaginn.

Sjá einnig:
Stærsti íþróttamiðill Argentínu gefur Messi falleinkunn
Athugasemdir
banner
banner
banner