Þeir voru hressir stuðningsmenn Íslands sem Fótbolti.net hitti fyrir utan Spartak Stadium í Moskvu eftir 1-1 jafntefli Íslands og Argentínu í fyrsta leik Íslands á HM frá upphafi.
„Þetta er nánast eins og sigur. Þetta er fáránlega góð tilfinning. Þetta er nefnilega Argentína, sem er legendary þjóð í fótbolta."
„Fólk er að reyna skipta um treyjur við okkur. Við seldum sál okkar eftir leikinn en við unnum leikinn má segja. Þetta var alveg frábært."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir