Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 16. júní 2019 15:00
Oddur Stefánsson
HM kvenna: Svíþjóð með auðveldan sigur gegn Tælandi
Mynd: Getty Images
Svíðþjóð og Tæland áttust við í Nice í Frakklandi núna í dag þar sem Svíjar sigruðu þær tælensku ansi þæginlega í öðrum leik F - riðils.

Sweden W 5 - 1 Thailand W
1-0 Linda Sembrant ('6 )
2-0 Kosovare Asllani ('19 )
3-0 Fridolina Rolfo ('42 )
4-0 Lina Hurtig ('81 )
4-1 Kanjana Sungngoen ('90 )
5-1 Elin Rubensson ('90 , víti)

Þær gulklæddu voru með yfirhöndina allan leikinn og unnu þæginlegan 5 - 1 sigur.

Linda Sembrant skoraði fyrsta mark Svíja á sjöttu mínútu og eftir það þá reyndist þetta auðvelt.

Kosovare Asllani og Fridolina Rolfö bættu síðan við tveimur mörkum fyrir hálfleik.

Lina Hurtig bætti við því fjórða undir lok seinni hálfleiks. En þær tælensku gáfust þó ekki upp og Kanjana Sung-Ngoen bætti við sárabótarmarki í lokin rétt áður en þær sænsku fengu víti eftir að VAR dæmdi hendi og víti í uppbótartíma sem Elin Rubensson setti í netið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner