Knattspyrnuheimurinn stoppaði í nokkrar sekúndur þegar Christian Eriksen, leikmaður Danmerkur, fór í hjartastopp á grasinu í Parken í Kaupmannahöfn í síðustu viku.
Miðjumaðurinn knái þurfti endurlífgun og fór beinustu leið á spítala en leikurinn hélt áfram nokkru síðar, þar sem sjokkeraðir Danir töpuðu óvænt gegn frændum sínum frá Finnlandi.
Knattspyrnuheimurinn hefur sýnt mikinn samhug með Eriksen sem liggur uppi á spítala og hefur hann fengið ótal batakveðjur.
Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegt samantektarmyndband með kveðjum frá vinum og liðsfélögum Eriksen, bæði núverandi og fyrrverandi.
Líðan Eriksen er stöðug. Það hefur ekki enn verið gefið út hvað olli því að hann fór í hjartastopp.
Athugasemdir