Fotbolti.net
16.06.22 - 21:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hlynur Atli: Megum vera heppnir en samt ekki með jafntefli

Hlynur Atli: Megum vera heppnir en samt ekki með jafntefli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er svo súrsætt," sagði Hlynur Atli Magnússon fyrirliði Fram eftir 2-2 jafntefli gegn KA á Akureyri í kvöld.

„Við stóðum okkur ógeðslega vel á köflum en svo fannst mér við taka full stóra kafla í síðari hálfleik sem við 'droppum' of djúpt og leyfum þeim að herja á okkur þó við fáum færi inn á milli sem þeir gerðu vel í að verja. Við megum vera heppnir en samt ekki að komast með jafntefli úr þessum leik," sagði Hlynur.

„Við hefðum getað klárað leikinn fyrr en hleypum þeim inn í leikinn og svo fór sem fór."

Hlynur segir að liðið hafi bakkað full mikið í síðari hálfleik.

„Við vorum lengi að klukka menn, vorum að leyfa þeim að stiga of hátt upp á völlinn. Þeir fá full fríar sendingar, svo eru þeir með sprækt lið. Þegar þeir herja með allan þennan mannskap þá gefa þeir færi á sér sem við fengum og hefðum getað klárað þetta. Við verðum bara að gera betur og vera nær mönnum og vinna betur, það er mergur málsins."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.