Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 16. júlí 2018 17:00
Ívan Guðjón Baldursson
Emre Can: Heppinn að fá að spila með Ronaldo
Mynd: Getty Images
Emre Can fór frítt til Juventus þegar samningur hans við Liverpool rann út í júní.

Can, sem vann Álfukeppnina með Þýskalandi í desember, hefur spilað og æft með bestu leikmönnum heims en segir ekkert jafnast á við að vera með Ronaldo í liði.

„Ég hef notið þeirra forréttinda að fá að spila með bestu leikmönnum heims á mínum stutta ferli," sagði Can við Bild.

„Að spila með Ronaldo mun vera eitthvað ennþá betra. Hann er lifandi goðsögn og myndi bæta hvaða lið sem er.

„Hann er ótrúlegur leikmaður, einn af allra bestu í sögunni. Ég tel mig heppinn að fá að spila með honum."

Athugasemdir
banner
banner
banner