Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 16. júlí 2018 12:30
Ívan Guðjón Baldursson
Jack Rodwell á reynslu hjá Watford
Mynd: Getty Images
Enski miðjumaðurinn Jack Rodwell er á reynslu hjá Watford samkvæmt heimildarmanni Sky Sports.

Rodwell þótti á sínum tíma gífurlega mikið efni og gerði frábæra hluti hjá Everton, þar til hann var keyptur til Manchester City 2012.

Rodwell fékk lítið að spila hjá City og var keyptur til Sunderland í ágúst 2014. Sunderland leikur nú í ensku C-deildinni og losaði sig við Rodwell í júní til að lækka launakostnað.

Rodwell lék 38 keppnisleiki fyrir yngri landslið Englands og spilaði þrjá A-landsleiki frá 2011 til 2013.
Athugasemdir
banner
banner
banner