Þó svo að HM ævintýri Íslands hafi lokið fyrir tæpum þremur vikum síðan og HM í Rússlandi lauk í gær er Instagram ævintýri Rúriks langt í frá lokið og ef eitthvað er, þá er það einungis rétt að byrja.
Eftir að Rúrik kom inn á sem varamaður fyrir Jóhann Berg Guðmundsson í 1-1 jafntefli Íslands gegn Argentínu fyrir mánuði síðan fjölgaði fylgjendum Rúriks á Instagram töluvert og fer þeim enn fjölgandi með hverjum deginum. Í dag eru fylgjendur Rúriks 1,3 milljónir manns.

Í dag setti Rúrik inn nýja mynd af sér berum að ofan og hefur hún vakið töluverða athygli meðal Instagram fylgjendum hans, en innan við klukkutíma eftir að hann setti myndina inn á Instagram hafa 148 þúsund manns líkað við myndina.
Sú mynd sem hefur fengið hvað flest "like" svokölluð, er mynd af Rúrik og Ólaf Inga Skúlasyni fyrir leik Íslands og Nígeríu í Volgograd 22. júní. Sú mynd hefur fengið 496 þúsund "likes".
Hægt er að sjá myndina sem Rúrik setti inn í dag hér að neðan.
Athugasemdir