Edwin Van Der Sar hefur viðurkennt að félagið hafi mikinn áhuga á að fá Daley Blind til liðs við félagið frá Manchester United.
Svo virðist sem að samkomulag sé í höfn á milli félaganna fyrir Blind sem myndi þá snúa aftur til Ajax.
„Mér finnst Daley vera frábær leikmaður. Hann er margþættur, getur spilað í vinstri bakverði, miðverði og sem varnarsinnaður miðjumaður. Hann hefur átt marga góða leiki fyrir bæði Holland og Manchester United,” sagði Van Der Sar.
„Ég held að það sé ekkert leyndarmál að við erum að leita að miðverði og ef það er hægt væri það frábært fyrir Ajax að fá leikmann með gæði Daley til þess að passa inn í liðið.”
Athugasemdir