Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 16. júlí 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Lindelöf: Ég er mjög ánægður hjá Manchester United
Mynd: Getty Images
Victor Lindelöf, varnarmaður Manchester United, segist vera hæstánægður hjá félaginu.

Svíinn kom öflugur inn í lið Manchester United á síðasta tímabili eftir að hafa átt erfitt uppdráttar á fyrsta tímabili á Old Trafford.

Lindelöf var orðaður við Barcelona á dögunum og Hasan Cetinkaya, umboðsmaður hans, gaf þeim sögusögnum undir fótinn á dögunum.

Lindelöf segist hins vegar sjálfur vera hæstánægður hjá United.

„Ég er mjög ánægður með að vera leikmaður Manchester United. Ég bíð spenntur eftir að nýtt tímabil hefjist. Það er svarið mitt. Ég er ánægður með að vera hér," sagði Lindelöf.
Athugasemdir
banner
banner