fim 16. júlí 2020 18:57
Ívan Guðjón Baldursson
England: Leicester lagði Sheffield - Villa náði í stig á Goodison
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Leicester City lagði Sheffield United að velli í Evrópubaráttunni og er komið þremur stigum fyrir ofan Manchester United í Meistaradeildarsæti.

Leicester sýndi yfirburði sýna gegn Sheffield og skoraði Ayoze Perez fyrir leikhlé eftir stoðsendingu frá 19 ára gömlum Luke Thomas sem var að spila sinn fyrsta úrvalsdeildarleik.

Yfirburðir Leicester héldu áfram í síðari hálfleik og innsiglaði Demarai Gray sigurinn eftir góða sendingu frá Jamie Vardy.

Sheffield er tveimur stigum frá Evrópusæti eftir sigurinn.

Leicester 2 - 0 Sheffield Utd
1-0 Ayoze Perez ('29)
2-0 Demarai Gray ('79)

Gylfi Þór Sigurðsson var ekki í byrjunarliðinu er Everton tók á móti fallbaráttuliði Aston Villa í bragðdaufum leik sem einkenndist af mikilli baráttu.

Villa fékk fleiri færi í leiknum og klúðraði Anwar El Ghazi algjöru dauðafæri sem hefði líklegast innsiglað mikilvægan sigur.

Miðvörðurinn Ezri Konsa kom Villa yfir eftir 72 mínútur og jafnaði Theo Walcott stundarfjórðungi seinna með sjaldgæfu skallamarki.

Villa er þremur stigum frá öruggu sæti eftir sigurinn á meðan Everton siglir lygnan sjó um miðja deild.

Gylfi spilaði síðustu tuttugu mínúturnar.

Everton 1 - 1 Aston Villa
0-1 Ezri Konsa ('72)
1-1 Theo Walcott ('87)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner