Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 16. júlí 2020 21:18
Ívan Guðjón Baldursson
England: Man Utd jafnar Leicester í fjórða sæti
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Crystal Palace 0 - 2 Man Utd
0-1 Marcus Rashford ('45)
0-2 Anthony Martial ('78)

Manchester United er búið að jafna Leicester að stigum í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir sigur gegn Crystal Palace í kvöld.

Leicester er þó með fjórða sætið á markatölu, þar sem liðið er með þremur mörkum meira í plús heldur en Rauðu djöflarnir.

Palace byrjaði leikinn mjög vel og pressaði hátt upp völlinn en hvorugu liði tókst að skora fyrr en undir lok fyrri hálfleiks. Marcus Rashford gerði þá frábært mark þar sem hann plataði varnarmenn og markvörð Palace upp úr skónum með einfaldri og svellkaldri gabbhreyfingu.

Í síðari hálfleik fengu bæði lið fín færi en það var Anthony Martial sem tvöfaldaði forystu Man Utd á 78. mínútu eftir góða sendingu frá Bruno Fernandes.

Meira var ekki skorað og stefnir Man Utd á Meistaradeildarsæti. Næsti leikur liðsins er gegn West Ham og svo kemur stórleikur gegn Leicester í lokaumferðinni.

Southampton 1 - 1 Brighton
0-1 Neal Maupay ('17)
1-1 Danny Ings ('66)

Southampton og Brighton skildu þá jöfn á St. Mary's leikvanginum.

Neal Maupay skoraði fyrir Brighton í fyrri hálfleik og jafnaði Danny Ings í síðari hálfleik.

Fyrri hálfleikurinn var jafn en heimamenn voru við stjórn allan síðari hálfleikinn og óheppnir að kreista ekki fram sigur.

Brighton er svo gott sem búið að tryggja sæti sitt í deildinni eftir jafnteflið. Southampton siglir lygnan sjó um miðja deild.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner