Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fim 16. júlí 2020 19:49
Ívan Guðjón Baldursson
Maddison og Chilwell frá út tímabilið
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers stjóri Leicester er búinn að staðfesta að James Maddison, Ben Chilwell og Christian Fuchs verða frá út tímabilið. Það eru aðeins tvær umferðir eftir af deildartímabilinu.

Maddison og Chilwell eru algjörir lykilmenn í liði Leicester og eftirsóttir af stærstu félögum enska boltans. Maddison er að glíma við meiðsli á læri og hefur aðeins komið við sögu í þremur leikjum eftir Covid hlé. Chilwell meiddist á ökkla gegn Crystal Palace í byrjun júlí.

Meiðslin eru ekki talin alvarleg, þó nógu slæm til að halda þeim frá út mánuðinn.

Meiðsli Christian Fuchs eru þó alvarlegri og gæti hann verið frá í þrjá mánuði.

Leicester er í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar sem stendur, þremur stigum fyrir ofan Manchester United sem getur jafnað liðið á stigum með sigri gegn Crystal Palace.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner