Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 16. júlí 2020 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Martinelli frá út árið - Mari snýr aftur í september
Mynd: Getty Images
Brasilíski táningurinn Gabriel Martinelli verður frá út árið eftir aðgerð á vinstra hné.

Martinelli er 19 ára gamall og þykir gríðarlega efnilegur. Hann fékk mikinn spiltíma hjá Arsenal áður en hann meiddist á æfingu í júní.

Félagið segir að markmiðið sé að Martnielli verði byrjaður að æfa aftur af fullum krafti í kringum áramótin.

Miðvörðurinn Pablo Mari verður frá í skemmri tíma eftir að hafa meiðst á ökkla í leik gegn Manchester City í síðasta mánuði.

Mari er kominn af hækjum og er búist við að hann geti byrjað að spila fótbolta af fullum krafti eftir landsleikjahlé í september.
Athugasemdir
banner
banner
banner