Start 0 - 0 Rosenborg
Start náði góðu stigi gegn Rosenborg í norska boltanum fyrr í kvöld.
Jóhannes Harðarson fór upp með Start á síðustu leiktíð og er liðið enn án sigurs eftir átta leiki í efstu deild.
Jói og félagar eru þó búnir að safna fjórum stigum úr jafnteflum og verður áhugavert að fylgjast með þeim í harðri fallbaráttu.
Start átti góðan leik gegn Rosenborg og fékk talsvert fleiri færi en boltinn rataði ekki í netið.
Rosenborg er í sjötta sæti af sextán, með tólf stig.
Athugasemdir