Dimitri Payet hefur verið lykilmaður í liði Marseille frá komu sinni frá West Ham í janúar í fyrra.
Hann er með frábæran hægri fót, er iðinn við markaskorun og er einna helst þekktur fyrir að skora stórglæsileg mörk.
Hann gerði eitt slíkt í 4-0 sigri Marseille gegn Guingamp í frönsku deildinni fyrr í kvöld. Knötturinn barst þá til hans á lofti og náði Payet að leggja hann í topphornið, viðstöðulaust fyrir utan vítateig.
Sjón er sögu ríkari og er hægt að sjá myndband af markinu hér fyrir neðan, eða með að smella hér.
Athugasemdir