Fotbolti.net
16.09.19 - 22:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Óli Jó um framtíð sína: Það kemur í ljós

Auglýsing
Óli Jó um framtíð sína: Það kemur í ljós
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, var stuttorður í viðtali eftir tap gegn KR á Hlíðarenda í kvöld.

Með sigrinum tryggði KR sér sigur í Pepsi Max-deildinni, Íslandsmeistaratitilinn.
„Auðvitað erum við ekki sáttir að tapa þessum leik. KR-ingarnir voru með meira sjálfstraust og gráðugri en við. Ég held að það hafi verið munurinn."

Útlit er fyrir að Valur missi af Evrópusæti þetta tímabilið.

„Við erum ekki ánægðir með sumarið."

Á dögunum sögðum við frá því að Óli myndi líklega hætta þjálfun Vals eftir tímabilið.

„Það kemur í ljós," sagði Óli spurður út í framtíðina en þegar hann var spurður að því hvort hann vildi halda áfram með liðið, þá sagði hann einnig: „Það kemur í ljós. Ég er þjálfari Vals og verð það í einhverja daga í viðbót. Svo tökum við stöðuna eftir mótið."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.