Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 16. september 2021 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Glódís ekki lengi að koma sér í lið vikunnar í Þýskalandi
Glódís Perla Viggósdóttir.
Glódís Perla Viggósdóttir.
Mynd: FC Bayern
Landsliðsmiðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir fer vel af stað með þýska stórveldinu Bayern München.

Hún skipti yfir til Bayern frá Rosengård í sumar.

Glódís skoraði sitt fyrsta mark fyrir Bayern um síðustu helgi, í 4-0 sigri gegn Freiburg.

Hún gerði þriðja mark liðsins á 66. mínútu. Glódís lék allan leikinn fyrir Bayern en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir sat allan tímann á varamannabekknum.

Þessi frammistaða Glódísar skilaði henni sæti í liði vikunnar í þýsku úrvalsdeildinni hjá tímaritinu ELFEN_fussball. Glódís var fastagestur í liði vikunnar í Svíþjóð og spurning er hvort það verði þannig í Þýskalandi líka.

Glódís er núna komin í landsliðsverkefni þar sem er framundan leikur hjá Íslandi gegn Hollandi í undankeppni HM.


Athugasemdir
banner
banner