Ensku úrvalsdeildarfélögin Arsenal og Everton hafa mkinn áhuga á því að fá Unai Nunez, leikmann Athletic Bilbao, í janúar. Daily Mail greinir frá.
Nunez er 22 ára gamall varnarmaður en hann steig sín fyrstu skref með aðalliði Bilbao árið 2017.
Hann lék fyrsta A-landsleikinn með Spánverjum í september en hefur þó aðeins spilað þrjá leiki á þessu tímabili.
Arsenal og Everton hafa mikinn áhuga á að fá Nunez en hann gæti kostað allt að 30 milljónir punda.
Bæði lið hafa verið í vandræðum með varnarleikinn í byrjun leiktíðar en Arsenal hefur fengið flest mörk á sig af efstu sjö liðum deildarinnar á meðan Everton er í 18. sæti með aðeins 7 stig.
Athugasemdir