Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fös 16. október 2020 10:59
Magnús Már Einarsson
Middlesbrough reynir að fá Bolasie
Mynd: Getty Images
Middlesbrough er að reyna að fá kantmanninn Yannick Bolasie á láni frá Everton áður en félagaskiptaglugginn á milli deilda á Englandi lokar í kvöld.

Hinn 31 árs gamli Bolasie var nálægt því að ganga í raðir Middlesbrough fyrir tveimur árum en þá fór hann til Aston VIlla á láni.

Bolasie hefur áhuga á að fara til Middlesbrough núna en hann er ekki inni í myndinni hjá Everton.

Bolasie þekkir Neil Warnock, stjóra Middlesbrough, síðan þeir störfuðu saman hjá Crystal Palace.

Everton keypti Bolasie frá Crystal Palace á 25 milljónir punda árið 2016. Síðan þá hefur hann einungis leikið 32 leiki með Everton en hnémeiðsli hafa sett strik í reikninginn.
Athugasemdir
banner
banner