Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. október 2021 19:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Stuttgart fékk á sig mark á versta tíma
Mavropanos skoraði fyrir Stuttgart.
Mavropanos skoraði fyrir Stuttgart.
Mynd: Getty Images
Borussia M. 1 - 1 Stuttgart
0-1 Konstantinos Mavropanos ('15 )
1-1 Jonas Hofmann ('42 )

Borussia Mönchengladbach og Stuttgart skildu jöfn í síðasta leik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni.

Konstantinos Mavropanos, fyrrum leikmaður Arsenal, kom Stuttgart á bragðið á 15. mínútu leiksins. Mavropanos er grískur miðvörður sem þótti ekki nægilega öflugur fyrir aðallið Arsenal.

Stuttgart fékk svo á sig mark á versta tíma - rétt fyrir leikhlé. Þýski landsliðsmaðurinn Jonas Hofmann jafnaði metin fyrir Gladbach og staðan 1-1 í hálfleik.

Gladbach var mun sterkari aðilinn í leiknum en náði ekki að nýta sér það. Það var ekkert skorað í seinni hálfleiknum og lokaniðurstaðan jafntefli.

Gladbach er í tíunda sæti með 11 stig og Stuttgart í 12. sæti með níu stig.

Önnur úrslit:
Þýskaland: Haaland skoraði tvisvar í sigri - Leipzig gerði jafntefli
Athugasemdir
banner
banner
banner