Fotbolti.net
16.10.22 - 18:55
Brynjar Ingi Erluson

Besta deildin: Eyjamenn hólpnir eftir sigur á Fram

Sigurður Arnar Magnússon skoraði tvö og hjálpaði Eyjamönnum að tryggja sæti sitt í deildinni

Sigurður Arnar Magnússon skoraði tvö og hjálpaði Eyjamönnum að tryggja sæti sitt í deildinni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram 1 - 3 ÍBV
0-1 Sigurður Arnar Magnússon ('2 )
0-1 Eiður Aron Sigurbjörnsson ('24 , misnotað víti)
0-2 Sigurður Arnar Magnússon ('31 )
0-3 Halldór Jón Sigurður Þórðarson ('34 )
1-3 Þórir Guðjónsson ('67 )
Lestu um leikinn
ÍBV mun leika áfram í Bestu deildinni eftir að liðið tryggði sæti sitt með 3-1 sigri á Fram í Úlfarsárdal í dag. Þessi úrslit þýða það að ÍA er svo gott sem fallið niður um deild.

Eyjamenn vissu það fyrir leikinn að sigur myndi tryggja áframhaldandi veru í deildinni og var liðið því staðráðið í að ganga frá Frömurum.

Sigurður Arnar Magnússon skoraði fyrir ÍBV strax á 2. mínútu eftir að hann vann boltann ofarlega á vellinum og þrumaði honum í markið.

ÍBV fékk vítaspyrnu á 23. mínútu leiksins eftir að Jesus Yendis tók Guðjón Erni Hrafnkelsson niður í teignum. Eiður Aron Sigurbjörnsson fór á punktinn en spyrna hans var arfaslök og varði Ólafur Íshólm Ólafsson nokkuð örugglega.

Sigurður Arnar tvöfaldaði forystuna fyrir Eyjamenn sjö mínútum síðar. Arnór Breki Gunnarsson vann boltann á miðsvæðinu, keyrði að marki og lét vaða, en Ólafur varði í stöng. Sigurður mætti á ferðinni, tók frákastið og skilaði boltanum í markið.

Þremur mínútum síðar gerði Halldór Jón Sigurður Þórðarson þriðja markið. Felix Örn Friðriksson átti góða sendingu á Halldór sem skoraði með skoti í slá og inn. Eyjamenn að ganga frá Frömurum.

Framarar fóru að sækja í sig veðrið í þeim síðari. Fred var nálægt því að minnka muninn en tilraun hans var bjargað á línu og þá átti Guðmundur Magnússon skalla í stöng áður en Eiður Aron bjargaði gestunum.

Markið hjá Fram kom á endanum. Þórir Guðjónsson skoraði með hörkuskalla eftir hornspyrnu. Fjórum mínútum síðar vildi ÍBV fá vítaspyrnu er Telmo Castanheira féll í teignum eftir viðskipti sín við Þóri, en ekkert dæmt.

Fram kom boltanum í netið undir lok leiksins en Jannik Pohl var dæmdur rangstæður.

Framarar náðu ekki að gera meiri spennu úr þessum leik og fór það svo að ÍBV vann, 3-1. Þetta þýðir að ÍBV er með 29 stig og fer liðið upp fyrir Fram í 2. sæti neðri hlutans. ÍBV er því búið að bjarga sér frá falli og skilur því FH, Leikni og ÍA eftir í fallbaráttunni.

Fram er í 3. sæti neðri hlutans með 28 stig og búið að bjarga sér frá falli þegar tvær umferðir eru eftir.
Halldór Jón Sigurður Þórðarson skoraði þriðja mark ÍBV

Halldór Jón Sigurður Þórðarson skoraði þriðja mark ÍBV

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.