Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   sun 16. október 2022 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool í baráttuna um De Jong?
Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool ætlar að blanda sér í baráttuna um Frenkie de Jong, miðjumann Barcelona, en þetta segir spænska blaðið Sport.

De Jong, sem er 25 ára gamall, var nálægt því að fara frá Börsungum í sumar en Manchester United og Chelsea voru bæði á eftir kappanum.

Hollendingurinn hefur þurft að sætta sig við mikla bekkjarsetu á þessu tímabili og virðist það alveg ljóst að hann er að íhuga það að yfirgefa félagið.

Manchester United mun reyna aftur við hann á næsta ári en Sport segir nú frá því að Liverpool ætli að blanda sér í baráttuna um hann.

Liverpool er í leit að miðjumanni og eru allar líkur á því að félagið missi að minnsta kosti tvo til þrjá á næsta ári. James Milner er á síðasta ári samningsins og sömu sögu má segja af Alex Oxlade-Chamberlain.

De Jong er einn af mörgum leikmönnum sem eru á blaði hjá Liverpool en Jude Bellingham og Konrad Laimer hafa einnig verið nefndir til sögunnar.
Slapp
banner