Fotbolti.net
16.10.22 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Man Utd fylgist með stöðu Leao hjá Milan

Rafael Leao

Rafael Leao

Canon

Mynd: EPA

Manchester United er að fylgjast grannt með stöðu Rafael Leao hjá Milan en þetta kemur fram í Mirror.
Leao, sem er 23 ára gamall, hefur heldur betur tekið Evrópuboltann með stormi síðustu tvö tímabil.

Hann var bestur í Seríu A á síðustu leiktíð er Milan vann ítölsku deildina og hefur þá byrjað þetta tímabil af sama krafti.

Leao er eftirsóttur af öllum stærstu liðum heims, þar á meðal Manchester City, Chelsea og Paris Saint-Germain.

Mirror segir nú að Manchester United er komið í baráttuna um hann, en félagið fylgist grannt með stöðu hans. Leao er falur fyrir 150 milljónir evra eins og klásúlan segir til um.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.