Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   sun 16. október 2022 23:58
Brynjar Ingi Erluson
Richards skilur ekkert í dómaranum - „Ég er ekki að nota þetta sem afsökun"
Micah Richards, fyrrum leikmaður Manchester City og sparkspekingur á Sky Sports, skilur ekki ákvörðun Anthony Taylor um að dæma mark Phil Foden af í 1-0 tapi liðsins gegn Liverpool á Anfield í dag.

Foden skoraði á 55. mínútu leiksins. Erling Braut Haaland sparkaði boltanum úr höndum Alisson áður en boltinn barst til Foden sem skoraði.

Anthony Taylor, dómari leiksins, skoðaði atvikið betur og dæmdi í kjölfarið Haaland brotlegan í aðdragandanum er hann tosar Fabinho niður.

Richards skilur ekki ákvörðun Taylor og segir að hann hafi átti að halda sig við upprunalegu ákvörðunina.

„Á síðasta ári þá var sama sagan þegar dómarinn ákvað að sleppa því að reka James Milner af velli fyrir brot á Phil Foden og svo aftur í dag þá tók dómarinn aðra stóra ákvörðun. Hann átti að fylgja eigin sannfæringu, en þetta átti greinilega ekki að gerast."

„Ef þú horfir á Fabinho, þá er hann þegar á leið í grasið. Ef dómarinn leyfir leiknum að halda áfram, af hverju ekki að halda þig við upprunalegu ákvörðunina?"

„Hann er að dæma leikinn aftur þarna. Mér fannst þetta ekki augljós mistök."

„Ég er ekki að nota þetta sem afsökun en þegar þú ert hér á Anfield. Það er rafmagnað andrúmsloft. Ég hef heyrt að það hafi ekki verið þannig í síðustu leikjum, en í dag var það aftur upp á sitt besta,
sagði Richards.
Slapp
banner
banner