Sjáðu markið: Kagawa skoraði beint úr hornspyrnu í Belgíu

Shinji Kagawa

Mynd: Getty Images

Shinji Kagawa

Mynd: Getty Images
Japanski leikmaðurinn Shinji Kagawa lifir góðu lífi í Belgíu eftir glæstan feril hjá Manchester United og Borussia Dortmund.
Kagawa samdi við Sint-Truiden í Belgíu í janúar á þessu ári og skoraði stórglæsilegt mark fyrir liðið í gær.
Hann skoraði þá beint eftir hornspyrnu og var það einkar glæsilegt en boltinn sveif yfir markvörð Charleroi og í netið.
Markið kom á 12. mínútu og vann Sint-Truiden leikinn, 2-1. Hægt er að sjá markið hjá Kagawa hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hér