Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   sun 16. október 2022 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Xavi: Graður er ekki rétta orðið en mér finnst gaman að mæta Real Madrid
Xavi
Xavi
Mynd: EPA
Xavi, þjálfari Barcelona, segist sérstaklega hrifinn af því að spila í El Clasico-leikjunum en hann var spurður að heldur furðulegri spurningu á blaðamannafundi í gær.

Xavi spilaði þá ófáa leikina gegn Real Madrid er hann var leikmaður hjá Barcelona.

Liðin eigast við í dag klukkan 14:15 og er Xavi spenntur fyrir leiknum en ekki of spenntur. Blaðamaður spurði hann hvort þessir leikir gerðu hann graðan en það var ekki alveg orðið til að lýsa því.

„Ég veit ekki hvort það gerir mig graðan, veit ekki hvort það sé rétta orðið, en mér finnst gaman að mæta Real Madrid. Ég er með keppnisskap og ég væri til að vera fótboltamaður til að spila leiki eins og þessa."

„Það er stórbrotið að spila svona leiki. Hvatningin gæti ekki verið meiri og þetta er tækifæri til að leiða þessa keppni,"
sagði Xavi.

Barcelona og Real Madrid eru jöfn að stigum á toppnum með 22 stig.
Slapp
banner