Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 16. nóvember 2018 12:00
Arnar Helgi Magnússon
Endurhæfing Chamberlain í fullum gangi - „Tour De France bráðlega!"
Mynd: Getty Images
Oxlade Chamberlain meiddist illa á fæti eftir tæklingu í leik gegn Roma í Meistaradeildinni í apríl. 

Oxlade Chamberlain meiddist illa á fæti eftir tæklingu í leik gegn Roma í Meistaradeildinni í apríl. 

Átta dögum síðar gekkst hann undir aðgerð sem gekk vel en hann óskaði eftir að ekki yrði sagt frá hversu lengi hann yrði frá keppni á þeim tíma. Ástæða þess er sú að hann vildi ekki að staða sín myndi trufla framgöngu liðsins í Meistaradeildinni í vor. 

Afar ólíklegt verður að teljast að Chamberlain nái að spila á þessari leiktíð.

Það eru þó jákvæðar fréttir sem berast af honum núna en hann er farinn að mæta í ræktina sem og hann hjólar mikið á rándýru hjóli og skrifaði meðal annars undir eina myndina:

„Tour De France er bráðlega!"

Chamberlain birti myndir af sér í ræktinni þar sem hann þjálfar meðal annars hnéið sem að meiddist.

Hér að neðan má sjá brot af endurhæfingu Chamberlain en DailyMail tók vídjóið saman.





Athugasemdir
banner