Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 16. nóvember 2018 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrrum leigusali Dembele er að lögsækja hann
Mynd: Getty Images
Ousmane Dembele er í vandræðum þessa daganna. Hann á í erfiðumleikjum hjá liði sínu, Barcelona, og núna í Þýskalandi þar sem hann spilaði áður með Borussia Dortmund.

Dembele var ekki í hóp hjá Börsungum gegn Real Betis um síðustu helgi þar sem hann hafði ekki mætt á æfingu á fimmtudeginum.

Nú vill fyrrum leigusali Dembele í Þýskalandi að hann greiði sér rúmar 20 þúsund evrur (um 2,8 milljónir íslenskra króna). Hann er að lögsækja Frakkann.

Samkvæmt þýska blaðinu BILD þá skildi Dembele mjög illa við íbúðina þegar hann fór til Barcelona. „Það var rusl alls staðar og maturinn sem hann skildi eftir var farinn að rotna," sagði Gerd Weissenberg, eigandi íbúðarinnar, við BILD.

Dembele skilaði ekki lyklunum af íbúðinni og þurfti Gerd því að láta skipta um alla lása í húsinu.

Dembele er 21 árs gamall. Hann er á sínu öðru tímabili í Katalóníu.
Athugasemdir
banner
banner