Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 16. nóvember 2018 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Kostuleg viðbrögð Harry Redknapp og Paul Ince
Harry Redknapp er í þættinum I'm a Celebrity
Harry Redknapp er í þættinum I'm a Celebrity
Mynd: Getty Images
Enski knattspyrnustjórinn Harry Redknapp er farinn að taka að sér að koma fram í sjónvarpsþáttum á Bretlandseyjum en hann er nú í seríunni I'm a Celebrity.

Hópurinn í I'm a Celebrity er myndarlegur en þar eru menn á borð við Paul Ince, Steve Sidwell og Robbie Savage.

Harry Redknapp, sem hefur stýrt liðum á borð við Tottenham Hotspur, West Ham, Portsmouth og Southampton svo einhver lið séu nefnd en hann stýrði Birmingham í Championship-deildinni á síðasta tímabili.

Frumskógardýr voru í þættinum að þessu sinni en þar var fótboltasérfræðingunum boðið að halda á eðlu og snák en þeir voru nær því að hlaupa úr setti heldur en að halda á dýrunum.

Hægt er að sjá kostuleg viðbrögð þeirra í myndbandinu hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner