Mohamed Salah, leikmaður Liverpool á Englandi, reyndist hetja egypska landsliðsins er það vann Túnis 3-2 í undankeppni Afríkumótsins.
Túnis var með þriggja stiga forystu í J-riðlinum fyrir leikinn en það var útlit fyrir að liðið ætlaði sér að tryggja efsta sætið í kvöld.
Staðan var 2-2 þegar uppbótartími hófst en þá reyndist Salah vera hetjan.
Hann fékk boltann við teiginn, tók þríhyrningaspil við samherja áður en hann fékk boltann aftur. Hann lék þá á varnarmann og vippaði boltanum í netið.
Frábært mark hjá Salah en það má sjá hér fyrir neðan.
#مصر_تونس
— Mo SALAh FC (@LAllting) November 16, 2018
what a goal king Mo pic.twitter.com/x9KGwyiRak
Athugasemdir