Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. nóvember 2022 09:55
Elvar Geir Magnússon
Kolo Muani kemur inn í franska hópinn í stað Nkunku
Mynd: Getty Images
Randal Kolo Muani, sóknarmaður Eintracht Frankfurt, hefur verið valinn í franska landsliðshópinn í stað Christopher Nkunku sem er meiddur.

Nkunku, sóknarmaður RB Leipzig, meiddist á æfingu í gær og tekur ekki þátt á HM í Katar.

Kolo Muani hefur skorað átta mörk í 23 leikjum fyrir Frankfurt á þessu tímabili en hann lék sína fyrstu landsleiki fyrir Frakkland þegar hann kom inn sem varamaður gegn Austurríki og Danmörku í Þjóðadeildinni í september.

Meiðsli hafa herjað á landsliðsmenn Frakklands en liðið verður án
Paul Pogba, N'Golo Kante, Presnel Kimpembe auk Nkunku. Raphael Varane er enn að jafna sig eftir meiðsli en er í hópnum.

Frakkar mæta Áströlum þann 22. nóvember en Danmörk og Túnis eru einnig í riðlinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner