Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 16. nóvember 2022 10:24
Elvar Geir Magnússon
Son æfir með andlitsgrímu
Son á æfingu með Suður-Kóreu í morgun.
Son á æfingu með Suður-Kóreu í morgun.
Mynd: EPA
Efasemdir hafa verið um þátttöku Son Heung-min á HM í Katar eftir að hann kinnbeinsbrotnaði í leik með Tottenham fyrir rúmum tveimur vikum.

Hann tilkynnti hinsvegar fyrir viku síðan að hann yrði með á mótinu og það virðist vera að hann sé klár í slaginn.

Hann æfði með Suður-Kóreu í morgun en var með hlífðargrímu í andlitinu, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Suður-Kórea á fyrsta leik gegn Úrúgvæ fimmtudaginn í næstu viku. Gana og Portúgal eru einnig í H-riðlinum.


Athugasemdir
banner
banner
banner