Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 16. desember 2018 19:32
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Shaqiri var hættur að skipta jafn mikið sköpum
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp var himinlifandi eftir fyrsta deildarsigur sinn gegn Manchester United sem kom fyrr í dag.

Liverpool vann leikinn 3-1 þar sem Xherdan Shaqiri kom inn af bekknum og skoraði tvennu.

Klopp hrósaði Shaqiri að leikslokum og sagðist vera ánægður með að sjá hann gera herslumuninn.

„Þetta var stórkostlegt, við vorum við stjórn allan tímann. Við ýttum þeim, við vorum grimmir, við unnum boltann aftur, við vorum hugrakkir, við gáfum góðar stungusendingar," sagði Klopp.

„Í seinni hálfleik vorum við að reyna og reyna að skora þangað til Shaq kom inn og skoraði tvennu. Það var magnað, hann er stórkostlegur leikmaður.

„Við áttum smá samtal vegna þess að hann var hættur að skipta jafn mikið sköpum og áður eftir glæsilega byrjun hjá félaginu. Vinstri fóturinn hans er gerður til að skipta sköpum, og skjóta."


Nathaniel Clyne kom inn í liðið í fjarveru James Milner, Trent Alexander-Arnold og Joe Gomez og stóð sig vel í hægri bakverði. Þetta var hans fyrsti deildarleikur á tímabilinu.

„Þvílíkur leikur sem hann átti, vá. Desember er hálfnaður og hann er að spila sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu, ég ber mikla virðingu fyrir frammistöðu hans í dag."

Liverpool er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, einu stigi fyrir ofan Manchester City. Man Utd er í sjötta sæti, ellefu stigum frá Meistaradeild.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner