Gary Neville, knattspyrnusérfræðingur á Sky og fyrrverandi fyrirliði Manchester United, var ekki sáttur með frammistöðu Rauðu djöflanna í 3-1 tapi gegn Liverpool.
Heimamenn í Liverpool voru mun betri í leiknum en staðan var jöfn þar til á lokakaflanum, þegar Xherdan Shaqiri kom inn og skoraði tvö.
„Liverpool er langt á undan okkur. Það er ekki einn miðjumaður í þessu United liði sem kann að senda fótbolta. Ekki einn," sagði Neville með pirringstón í röddinni í útsendingu Sky.
„Mér finnst þetta ótrúlegt. United var skelfilegt í þessum leik. Liðið hélt sér í leiknum í smá stund en það var allan tímann bara eitt lið að fara að vinna þennan leik og það var Liverpool.
„Þetta er ekki nógu gott."
Athugasemdir