Ástralía og Sýrland mættust í Asíubikarnum á þriðjudaginn og átti stórfurðulegt atvik sér stað undir lok leiksins.
Tveir leikmenn Sýrlendinga hlupu þá á hvorn annan í vítateig Ástralíu og féllu í jörðina. Þeir heimtuðu vítaspyrnu og varð dómarinn við beiðni þeirra.
Omar Al Soma skoraði úr spyrnunni og var staðan því orðin 2-2 á 80. mínútu.
Vítaspyrnumarkið dugði þó ekki því Tom Rogic skoraði sigurmark Ástrala í uppbótartíma og tryggði liðinu annað sæti riðilsins, eftir Jórdaníu sem hefur komið skemmtilega á óvart.
Syria's Omar Al Soma was awarded a penalty in the Asian Cup after being tripped up by his own teammate. pic.twitter.com/5BMRLd3mdq
— ESPN FC (@ESPNFC) January 16, 2019
Athugasemdir