Jóhann Berg Guðmundsson er tæpur fyrir leik Burnley og Watford í ensku úrvaldsdeildinni á laugardag.
Sean Dyche, stjóri Burnley, sagði á fréttamannafundi í dag að það komi í ljós á morgun hvort Jóhann verði leikfær eða ekki.
Jóhann Berg var ekki með Burnley í 2-1 sigri á Fulham um síðustu helgi vegna meiðsla.
Sá sigur var gríðarlega mikilvægur fyrir Burnley en liðið er í 15. sæti úrvalsdeildarinnar í augnablikinu.
Eftir leikinn gegn Watford er vika í næsta leik Burnley en hann er gegn Manchester City í enska bikarnum.
Athugasemdir