Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 17. janúar 2019 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Slæmar fréttir fyrir Chelsea: Cagliari að hætta við Nandez
Mynd: Getty Images
Það eru slæmar fréttir fyrir Chelsea að berast úr ítölskum fjölmiðlum sem segja að tilraun Cagliari til að kaupa úrúgvæska miðjumanninn Nahitan Nandez af Boca Juniors hafi mistekist.

Cagliari var reiðubúið að greiða 21 milljónir evra fyrir Nandez en argentínska stórveldið var ekki sátt með greiðsludreifinguna sem ítalska félagið bauð uppá.

Þetta setur möguleg félagaskipti Nicolo Barella til Chelsea í hættu vegna þess að Nandez átti að fylla í skarð Barella á miðju Cagliari.

Inter og Napoli eru meðal félaga sem hafa einnig sýnt Barella áhuga en fjölmiðlar á Ítalíu segja þennan áhuga vera að deyja niður. Félögin ætla að bíða til sumars með að kaupa hann.
Athugasemdir
banner
banner