Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 17. janúar 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Barcelona í hættu
Mynd: Getty Images
Þrír síðustu leikir í 16-liða úrslitum spænska bikarsins fara fram í kvöld.

Real Sociedad tekur á móti Real Betis í fyrsta leik kvöldsins eftir að hafa gert markalaust jafntefli í fyrri leiknum.

Espanyol mætir svo Villarreal og er í góðri stöðu eftir að hafa skorað tvö útivallarmörk sem geta reynst mikilvæg í kvöld.

Barcelona og Levante mætast að lokum í spennandi viðureign þar sem gestirnir eru óvænt með forystuna eftir fyrri leikinn. Það verður þó erfitt að halda Börsungum í skefjum enda með feykilega öflugt lið.

Leikir kvöldsins:
18:30 Real Sociedad - Real Betis (0-0)
19:30 Espanyol - Villarreal (2-2)
20:30 Barcelona - Levante (1-2)
Athugasemdir
banner
banner
banner